FALLEGA FÓLKIÐ

Verið velkomin :)

09.04.2007 16:32:50 / astasig

Flott viðbrögð...

Vegna glás af áskorunum að halda áfram að blogga höfum við ákveðið að halda áfram enda bara gaman að kíkja á Fallega fólkið sko, haha..

En við ætlum ekki að vera hér áfram, við verðum með nýja síðu og geturðu farið inná hana hér fyrir neðan.. sjáumst þar :)

 

www.fagrafolkid.bloggar.is

 

kveðja Fallega fólkið !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 12:27:31 / astasig

Hætt hér.. !!

Hæ, öll við höfum ákveðið að hætta með þessa síðu, lítill tími gefst hjá okkur í að blogga en þið hafið bara samband í símana hjá okkur eða á emaili.. Takk fyrir okkur..

kveðja Fallega fólkið....


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 18:48:56 / astasig

Fallegustu börn veraldar..

Það var keypt á þau eins spiderman boli, og þau ekkert lítið sátt við þá !!

P.s nýtt símanúmer hjá Geira er 0045 28737510


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 18:02:50 / astasig

Fréttir af okkur..

Halló, það er orðið verulega langt síðan að við skrifuðum á síðuna hjá okkur enda kannski ekkert skrítið, búið að vera mikið að gera hjá okkur. Geiri fór á klakann að hitta Róbert sinn og aðra sem eru okkur kærir auðvitað og okkur langar að koma fram þakklæti til pabba og ömmu völu sem að hýstu okkur þennan tíma, við áttum frábærann tíma saman og vala var svo yndisleg að leyfa okkur að fá afnot af bílnum sýnum þúsund þakkir fyrir okkur :), Ásta kom svo viku seinna og við hittum Selmu loksins á fimmtudeginum 10 ágúst og var það ekkert smá gaman, við höfðum ekki hist síðan í byrjun júlí. Róbert og Selma voru svo yndisleg saman og fannst þeim ekkert lítið gaman að hittast loksins, þau vöktu lengi þetta kvöldið og voru að horfa á Stewart músina snjöllu og var það ekkert smá skemmtilegt :)

En við feðgar vorum í dagsskrá nánast alla dagana, við fórum í heimsókn til ömmu á kleppsvegi og hittum þar ömmu, daníel og kamillu systkyni Geirs. Svo var farið í sund og fannst Róberti svo gaman að fara í stóru renni brautirnar þrátt fyrir að upp var komið þorði hann varla :) þessi elska er ekki með stórt hjarta. Við fórum í veislu hjá ömmu og afa í melás garðabænum og hittum flest alla í fjöldskyldunni okkar.. Við vorum líka duglegir að fara niðurá tjörn og gefa mávunum brauð en það eru víst ekki margar endur þarna eins og stendur. Róbert fór í afmæli hjá Selmu og skemmti sér konunglega með Ástu og Selmu, og svo auðvitað margt fleirra sem var gert.

Á sunnudeginum var svo haldið af stað uppá leifsstöð, við komum klukkutíma fyrir flug hjá Ástu og voru svo hrikalega langar raðir að við héldum að Ásta og Selma myndu missa af vélinni en það gerðist ekki sem betur fer.

Svo þegar á flugvöllinn var komið í Danmörku þurftum við að bíða eftir lest í 3 tíma, lestarferðin gekk ágætlega þrátt fyrir smá tafir og vorum við komin heim um 4 um nótt heim á Borgergade.. Ásta fór svo í skólann klukkan 9 og var þetta fyrsti dagurinn hjá henni, dugleg þessi elska.. En nóg í bili og endilega sendið okkur komment hér fyrir neðan..

P.s það eru nýjar myndir frá þessari ferð hér vinstrameginn á síðunni .. bæjjjjjjjjj


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 15:53:30 / astasig

Geiri kaldi á klakann..

Nú er geiri að fara á klakann á morgun miðvikudag.. Leggur af stað héðan með lest klukkan hálf 8 og á svo flug klukkan 14:00 frá Dk.

Hann ætlar að fara að hitta hann róbert okkar loksins eftir langa bið og verða það fagnaðarfundir :)

Við segjum bara góða ferð Geiri ..


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 13:54:12 / astasig

Margt að gerast hjá okkur.

Við vorum svo heppin að fá fólkið hennar ástu í heimsókn og það er bara búið að vera gaman hjá okkur, við erum búin að vera í biluðum hita alla dagana. Skelltum okkur til árósa á miðvikudaginn og fengum okkur auðvitað kínamatinn góða og hinn heimsfræga ís...

Á fimmtudaginn héldum við svo óvart smá partý, átti ekkert að vera en varð bara og það var hrikalega gaman, fullt hús og allir kátir, menn gleymdu sér aðeins og spiluðu tónlistina frekar hátt í aðeins of langann tíma, þannig að við fengum óvænta heimsókn frá löggunni sem að bað okkur bara vinsamlegast um að skrúfa aðeins niður, hehe við vorum ekkert smá hissa á þessu, en þeir voru á vakt og vildu ekki koma inn í þetta skiptið, kannski næst.. haha..

Ég fer á klakann á miðvikudaginn 2 ágúst til að hitta litla gullið mitt sem við söknum svo sárt og það er svo mikil tilhlökkun að maður sefur varla fyrir spenningi..

Ámorgun sunnudag ætlum við öll að taka daginn snemma og fara til köben og skella okkur í Tívolíið, bara gaman .. En Hveragerðisdeildin fer heim um kveldið sama dag, við eigum eftir að sakna þeirra mikið.. Selman er bara ótrúlega hress og hefur það gott hjá pabba sýnum og hans fólki en við erum farin að sakna hennar svo mikið og styttist í að hún komi heim, gaman gaman.. En nóg í bili og aldrei að vita nema að við hittumst á íslandinu góða bráðum..

HAR DE MEGET GODT..

P.s það eru nýjar myndir neðst vinstramegin á síðunni :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 16:28:53 / astasig

Konungleg heimsókn !

Hæ, í dag erum við skötuhjúin búin að vera á fullu í að gera klárt fyrir konunglega heimsókn, en íslandsprins og frú eru að koma með fjsk sýna til að hitta hina ný kríndu dana prins og essu, foreldrar ástu koma á morgun, það er mikil tilhlökkun bæði á íslandi og í danmörku sko.. Það er búið að hengja upp kristalljósakrónur og silfra hnífapörin sko.. gaman gaman !!

við hjúin erum búin að vera ein núna í 3 vikur ca. og við erum bara í brjáluðu leti og höfum það risalega gott en Selmu er sárt saknað.. Við heyrðum í henni aðeins í gær og var hún í tjaldútileigu, mátti varla vera að því að heyra í okkur það var svo gaman hjá gellunni, sjáumst fljótlega Selma Björt..

Styttist í að Geiri fari á klakann að hitta Róbert sinn og fleirri auðvitað, það er gríðarlega spenna yfir því enda hafa þeir feðgar ekki hist í langan tíma því miður. En Ásta byrjar í skólanum 14 ágúst og tekur þá alvaran við og ekkert hægt að komast upp með eitthvað leti þá hmmmmm.. En Ástu hlakkar að von mikið til að fást við þetta verkefni en hún er að fara læra allt á dönsku og verður það bara tjallens en hún á eftir að brillera í þessu eins og öllu öðru.. ( þetta nám er samskonar og stúdentsporóf en bara tekið á 2mur önnum) úffffffff, verður eitthvað !!

Okkur þætti ofboðslega væntum að þið mynduð kvitta fyrir ykkur þegar  þið kíkjið á okkur, bara hér í kommentin fyrir neðan, annars biðjum við að heilsa úr hitanum frá Horsens og heyrumst..  einnig minni ég á síðuna hjá honum Róberti mínum http://www.barnanet.is/2813/?sida=forsida og endilega kvittið fyrir ykkur þar..

Ásta, Geiri og fiskarnir

(setum nýjar myndir inn hér vinstramegin)


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 17:04:19 / astasig

heitttttttttt

já það er heitt, já ég er sólbrunnin, svona er þetta hérna bara voru yfir 30 gráður í dag og er spá enn meiri hita á morgun þannig að þið ættuð öll að smala saman í púkk og skella ykkur hingað .. okey sjáumst :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:07:17 / astasig

Hææææjjjj.....

Komið þið öll sæl og bless.. Hér hjá okkur er ekkert lát á góða veðrinu og hitanum .. maður bara situr og svitnar hema hjá sér.. Þetta var eiginlega ekkert að ganga lengur við vorum gersamlega á barmi ofhitunar, þannig að við röltuðum í Bilka í gær og festum kaup á eina COOL AIR viftu 2000 hestafla trillitæki !! Hehe .. en þvílíki lúxusinn hjá okkur sko. Að labba upp á 4. hæð í þessum hita er nottlega ekkert nema helvíti þannig að maður byrjaði alltaf á að afklæðast þegar maður var kominn inn fyrir dyrnar við mis undirtektir hjá nágrönnunum HAHA.. en nú er þetta allt annað líf nú er bara nóg að kveikja á cool air og standa fyrir framan hana og láta hana blása á svita og klístraðan líkamann  :) .. Þannig að nú sitjum við hjúin í sófanum og látum vindinn þjóta um hár okkar bara næææs... Cool air er sko dýrmætasta eign okkar þessa dagana!

Selma er enn hjá pabba sínum og er búinn að fara í útilegu og svo er hún búin að fá takkaskó og fótbollta og er svo þvílíkt að fíla það .. algjör gutti sko, það á víst að reyna að gara hana að næsta Ronaldinio!! Við segjum bara Gó selma..

Familían úr hveragerði ætlar að reyna á að kíkja í næstu viku og ég er sko búin að banna þeim að koma með með sér rigninguna en þaug meiga alveg koma með fisk og grænar baunir :haha: en allaveg þá er rosa tilhlökkun að fá þaug í heimsókn.. Svo kíkti Alda frænka, Óli og Jóna á okkur í smá kvöld kaffi rosa gaman að sjá þau..

Jamms þetta er svona það heitasta hjá okkur .. hvað er að f´retta hjá ykkur ?? Þangað til næst Ásta, Geir og Cool air viftan :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 15:54:31 / astasig

Góðan dag...

Hæææææj, við Ásta sitjum hér fyrir framan tölvuna og langaði okkur að setja inn nokkrar línur. Það er svosem ekki mikið að frétta og við erum komin með nett samviskubit að vera tala alltaf um hversu mikil sól og hlýjindi eru hér því að það er víst bara rigning á klakanum, en já núna eru sennilega 25-28 gráður og glampandi sól, við erum bara ekki vön þessu og stundum eftir nokkra svona daga er maður farinn að þrá að fá bara ský og aðeins svalara loft, hehe maður er aldrei sáttur sama hvernig veðrið er..

En á fimmtudaginn fórum við í grensann og gerðum fínustu kaup, alveg ótrúlegt hvað hægt er að versla þar fyrir lítinn pening, við eigum nefninlega jafnvel von á heimsókn til okkar fljótlega amk vonum við það, fólkið hennar Ástu eru skilst mér að spá í því að skella sér í góða veðrið. Ég fór í gær í verslun hér fyrir neðan okkur og fann þar DVD disk með TOTO og keypti hann en pabbi Ástu fílar þá víst í tætlur.

Við erum bara búin að vera vinna að njóta þess að vera til núna síðustu daga, en Ásta var að fara í tveggja vikna sumarfrí þannig að það verður enn meiri slökun hjá henni. Svo er stefnan hjá mér að fara til íslands fljótlega í ágúst og hitta hann Róbert minn sem að við söknum svo mikið og aðra auðvitað, mikil tilhlökkun þar sko.

En við ætlum ekki að hafa þetta lengra í bili en við heyrumst fljótlega og endilega skrifið fyrir ykkur hér í kommentið fyrir neðan, kveðja frá okkur.

p.s við vorum að setja inn myndir af heimilinu okkar og eitthvað af bænum hér.. kíkið neðst vinstramegin á síðuna..


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 15:15:13 / astasig

Það er bara gott veður sko...

Halló allir.

Það er ekkert lát á sólinni og erum við búin að vera spóka okkur í 25-30 gráðum í rólegheitum, reyndar rigndi aðeins í í gær en það var bara lauflétt.

En smá saga, um helgina nánar á laugardagskvöld fékk ég símhringingu frá manni sem sagðist ekkert þekkja mig og ég ekki hann, en hann sagði að hann var nýfluttur til Horsens og að honum leiddist og ætlaði bara að tékka hvort að ég væri til í að kíkja út í einn kaldann, ég var pínu hissa en bauð honum bara heim til okkar í heimsókn, þessi piltur reyndist opinn (augljóst reyndar) og skemmtilegur og við skemnmtum okkur saman vel um það kveldið. Ég segi bara SVONA á að gera þetta, ekki sitja á rassinum og bíða eftir einhverju sem gerist ekki  !! og hana nú..

En við erum að fara í bíó núna á Pirates of the caribbean 2 þannig að ég bið að heilsa í bili.. heyrumst í sólinni :) bææjjjjjjjjj


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 16:46:32 / astasig

Ein í kotinu.. eða tvö

Hæææææjjjjjjjjjjj :) við erum bara tvö í kotinu þessa dagana, Selma skrapp á klakann í rigninguna til að hitta fólkið sitt, við verðum að játa að það er ferlega skrítið að hafa hana ekki hjá okkur og söknum við hennar RISALEGA mikið. Hún er svo mikið yndi, var að spjalla við ömmu sýna og er alltaf að babbla eitthvað á dönsku við hana og spyr ömmu sýna afhverju hún kunni ekki dönsku..gaman að því :) við h-fum svosem ekki mikið að segja nema að Róberti gengur rosalega vel og hann hefur það gott hjá mömmu sinni, hans er alveg ótrúlega sárt saknað en það styttist í að ég fari og hitti þessa elsku, maður er bara að vinna fyrir flugfari eins hallærislegt og það hljómar. En hafið að æðislegt og við heyrumst svo fljótlega !!

Kveðja frá Horsens.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 13:19:30 / astasig

Ísland hér kem ég !!

Dúllan búin að pakka og er á leiðinni upp í lest og svo í flugvélina alveg að springa úr spenningi... Rosalega sumarleg og sæt 8) Við eigum sko eftir að sakna þín Selma Björt


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 20:29:11 / astasig

Bunarúst!!

Æi dúllan mín svona pínu brunninn eftir fyrsta daginn úti í vinnunni.. enda búið að vera um 30 gráður hérna hjá okkur.. bara SVEITT..

Sveittar kveðjur ásta og geiri


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 12:29:25 / astasig

SVITABAAAAÐÐÐÐ.........

Hiti hiti hiti..

Hér er brjálaður hiti hjá okkur og fer hækkandi á fimmtudaginn á hitinn að vera í og yfir 30 gráður!!

Geiri vinnukall fór fyrsta daginn sinn í gær í vinnuna, hann er að mála uppí mosa og er úti allan daginn. En því miður gleymdist að huga svo langt að kaupa sólarvörn fyrir greyið og er hann brjálað brenndur dúllan sú.. hann fór úr hlírabolnum í gærkvöldi og það var eins og hann væri kominn í hvítann bol hehehehe  8)8) Ég er í produktionhöjskol að vinna í mötuneiti það er rosa fínt og erum við þar 5 íslenskar pæjur að vinna saman mað baununum :) ég mæti hálf átta á morgnana og er til 2 á daginn þannig að það er rosalega fínt. Selman okkar er bara áleikskólanum ennþá en er að fara í frí á fimmtudaginn næsta þá ætlar hún að skella sér í flugvélina og hitta pabba sinn og eydísi og dætur hennar en þær eru bestustu vinkonur, þannig að það verður kátt á hjalla þar á bæ. Svo ætlar hún nú líka að fara að hitta ömmu og afa í Hveragerði.

En annars er bara það besta að frétta af okkur hjúunum héðan úr hitanum. maður er bara duglegur að fara og fá sér einn kaldann og rennur hann nú ljúft niður í heitann kroppinn.. en má ekki bara bjóða ykkur að koma og kíkja á okkur :D:D:D

Bæjó :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6